Smá fréttir...

Á mínns ekki að setja smá fréttir hérna inn?

Ég er byrjuð í Tækniskólanum að læra á Grunnnámi Upplýsinga og fjölmiðlabraut á leið í ljósmyndunCool Já ýmsilegt sem ég ætla mér get ég! Er mjög lasin engu að síður en ber mig áfram á hörkunni...

Börnin mín hraust og hress, Dagur Nökkvi að byrja á stóru deildinni og er soldið lítill í sér enn það gengur vel. Viktoría Svala nýorðin 1. árs og ekki byrjuð að labba en það fer að koma skal ég segja ykkur...

Mig langar aðallega að minna ykkur á kæru félagar og vinir að safna að ykkur fólki sem þið elskið eða þykir vænt um og segja skilið við þetta neikvæða. Ekki hugsa um biturt fólk sem er afbrýðisamt eða vill ykkur illt. Lífið er of stutt fyrir svoleiðis pakka! Mikið er lífið skemmtilegt þegar jákvæða fólkið og hlutirnir umlykja okkur....

Knús

svala


Myndir

Já með mitt fallega sjálfsmat ákvað ég að "pósta" inn hér nokkrum myndum sem ég tek sjálf. Þetta eru bara nokkrar af mjög mörgum og þið getið skoðað betur ef þið eruð með Facebook síðuWink

 Er að reyna að komast á lappir með líf mitt og það gengur vel þrátt fyrir að ég þurfi að skoða sjálfa mig mikið í leiðinni og það er erfitt. Erfitt að viðurkenna vanmátt minn gagnvart lífinu og öllu því sem hefur hent mig. En ég verð að gera það, svo mikð er víst...

Jóladót er komið hér upp, þrátt fyrir mikinn kvíða og litla tilhlökkun fyrir jólin. Svona er þetta, þetta kemur vonandi einhverntímann fyrir Þorlák...

070

Þær eru svo allar í albúminu....

knús

Svala


Jæja dúllurnar mínar...

Hæ elskurnar mínar

Ég er haldin ritstíflu þessa dagana en það koma svoleiðis dagar. Allt flott að frétta, er að læra í skólanum mínum og svo læra heima í spilunum mínumCool Er að verða ofsalega klár í öllu saman. Er nokkuð "busy" sem er gott. Skólinn er 2var í viku 3 klst í senn svo er ég á námskeiði á mánudögum líka í 2 tíma. Er með barnapíu sem ég treysti vel. Það er gott. Ég syndi núna 3-4 sinnum í viku líka og mér líður miklu betur. Er alveg "ógisssslega dugleg!" Svo auðvitað læknatímar og blabla...

Auðvitað er ég mjög oft með kvíðahnút og vesen enda alltaf eitthvað drama í gangi hjá mér...já það er eitthvað í loftinu hjá mér! Annars kann ég alveg orðið að takast á við hlutina og það er mikill munur. Að geta kúplað sig frá neikvæðu fólki....þótt það sé kannski oft i kringum mann....að láta það ekki smita frá sér skiljiðiWink

Viktoría Svala yndislega mín er líklegast með mjólkuróþol greyið. Er bara á Soja og einhverju sérfæði hérna þessi elska... finn mun á henni, þarf samt að gefa því lengri tíma. Löng helgi hjá Degi Nökkva en það var frí á föstudaginn á leikskólnum. Hann fékk dekurdag með mömmu sinni, systur, Kristínu frænku, Tómasi og Pétri Nóa sem passaði vel upp á frænda sinn og sagði öllum inn á Kentucky hvernig hver og einn væri skildur honumLoL. Sagðist líka ætla að kenna Degi frænda sínum hvernig á að vera stilltur. Hann skilur bara hreinlega ekki afhverju hann er alltaf svona óþekkur....og þá segist hann ætla að "hætta að vera frændinn hans", þar að segja þegar Dagur Nökkvi er upp á sitt bestaTounge. Snillingar þessar elskur. Viktoría og Tómas fengu föt í stíl en mömmurnar elska að hafa þau eins...enda eru þau svo oft að leika saman. Bara fyndnar þessar kellingar.......

Í dag fórum við fjölskyldan í borg óttans og versluðum aðeins í kreppunniTounge Nei nei kíktum aðeins í Rúmfó og Ikea....okkur vantaði smá hér heima. Fórum síðan og átum á Ruby Tuesday en það kostaði okkur næstum því það sama og fyrir máltíð á Rauða húsinu! Þvílíkt okur! Jæja en burt séð frá því var þetta góð ferð í höfuðborgina. Á morgun er barnaafmæli á Stokkseyri hjá henni Júlíönu prinsessu, það verður örugglega yndislegt eins og allt hjá henni Agnesi minniHeart Fórum hjónin í bíó áðan á Reykjavík Rotterdam og hún er æði. Baltasar og Ingvar klikka náttúrulega ekkiWink Sem sagt, ég get aldrei slakað á en alltaf ofsa gaman hjá mér! ritstífla hvað?! Búin að skrifa fullt...

Svo styttist í jólin....ekki beint minn tími get ég sagt ykkur. Fæ netta gæsahúð bara að hugsa um það. Vanlíðunartilfinning því miður... vona að þau verði fljót að líðaGetLost

Æji dúllurnar mínar, hafið það ofsa gott....ætla að fara undir teppi, jeminn mér er svo kaaaaalt....


Orðrétt eins og ég myndi segja það....

http://evathor.blog.is/blog/evan/

Jæja....

Helluuuuu...

Allt að verða brjálað á Íslandi, maður þarf víst að ríghalda í budduna núnaWoundering Annars hef ég ekki miklar áhyggjur af minni fjölskyldu en margir í landinu eiga eftir að finna mjög mikið fyrir þessu og ég bið góðan Guð að vera með því fólki sem þarf að leita sér hjálpar vegna fjárhags.

Ég er byrjuð í ræktinni, nú er tími til komin að ég styrki mig. Gott fyrir gigtina og allt saman. Er búin að létta mig það mikið að nú er tími til að styrkja sig og ná af sér "afgangs skinni;)".  Komin á rétt lyf, bólgueyðandi gigtarlyf og lyf sem að heitir Lyrica sem ég tek með þunglyndislyfjunum. Er allt önnur manneskja!!!!Shocking Skjaldkirtillinn er í lagi núna þannig að ég er á réttum lyfjaskammti fyrir hann. Núna eru einhverjar manneskjur svona út af þessu lyfjatali: Pouty.......svona er að lifa svona veikur. Ég hef ekki um neitt annað að ræða en að taka lyf og er líka í samtalsmeðferðum við mínum veikindum, sjálfstyrkinganámskeiði, sálfræðingi, geðlækni og fleira og fleira vegna vandamála úr fortíðinni sem flestir vita ekkert um. Barnsmissir hefur líka sitt að segja á kvíðann...... eeeeennn hverjum er ekki sama hvað öðrum finnst.....?

Ég er með stórar áhyggjur af Degi Nökkva mínum. Á hverri einustu nóttu í langan tíma hefur hann vaknað um 4 leytið öskrandi og skelfur af hræðslu....ég hugsaði með mér að hann væri bara mömmustrákur og þess vegna væri hann svona, svo fékk ég að vita hvernig hann er á leikskólanum...vaknar öskrandi í hvíldinni líka. Ég er ráðþrota. Viktoría vaknar líka svona en málið er með hana að hún hefur alltaf gert það og aldrei sofið vel, enda er ég að panta tíma fyrir hana í höfuðbeina og spjaldhryggs meðferð. En hann hefur aldrei verið svona! Var mjög vært ungabarn og svaf eins og engill. Ég er svo hrædd um að einhver sé að angra hann....þá meina ég einhver hinumegin. Ég var opið barn og dreymdi mjög oft furðulega, sá svarta fingur eiga við mig og ég man hvað mér leið illa og var alltaf logandi hrædd. Svo helst það í hendur hjá mér að ég var kvíðasjúklingur þegar ég var barn líka og ég hef svo miklar áhyggjur að hann sé að erfa það. Annars finnst mér það furðulegt að það komi fram við 2ja ára aldur? Á maður að hringja í miðil, svefnráðgjafa eða sálfræðing?? Nú spyr ég um ráð og vona að þið elskurnar ráðleggið mér eitthvaðHeart

Þótt svo þið ráðleggið mér ekkert nenniði þá að kvitta fyrir komuna, það er svo gaman að sjá hverjir kíkja;)

Hafið það sem best og Guð blessi ykkurSmile


Kisulingur

Sæl elskurnar

Hjá mér er allt ágætt að frétta. Er reyndar búin að vera "lasin" en ég er með svo svakalega tannpínu að það hálfa væri alveg feikinóg! Er að bíða eftir tíma hjá rótarsérfræðingi því þessi tönn er meira að segja of skemmd fyrir "regular" tannlækni! Núna er mín á sýkló, verkjó og fljótandi. Fékk tíma já............17 nóvember! Tek það fram að ég er búin að vera með bráðarbirgðarfyllingu síðan í júní eða e-h! Þannig að ég bíð baraGetLost......

Við erum að tala um að það er svo kalt núna inni hjá mér að ég er andvaka vegna kulda! Sit hérna ein með kettinum, honum Felix, sem er símalandi eins og sláttuvél blessaður....vill sífellt vera ofan í manni, algjört krútt. Verst að hann vekur svo oft börnin og okkur þegar hann kemur uppí á nóttunni(með mali) svo hér þarf allt að vera lokað á hann.

Ég er komin með barnapíu og ánægð með það. Nú kemst ég allavegana til rótarsérfræðingsins án þess að vera með áhyggjur haha!

Annars bara ekkert að frétta nema það sama. Læknatímar og barnaknús....kikti reyndar í höfuðstaðinn á mánudaginn og verslaði af mér rassinn...eða svona næstum því;) hitti reglulega vinkonur of fjölskyldu...´

Jæja nú er kisa komin inn á sloppinn minn og er að koma sér fyrir þar....ekki alveg að meika þetta.

Bless i bili

Svala


Ástandið...

Mikið er ég fegin að vera eins og ég er. Eins og ég segi alltaf þá er kostur að vera tilfinningavera. Kostur að geta fundið til með öðrum og sett sig í spor annarra. Gott að geta grátið, fundið til og að allar tilfinningar séu svo sterkar að þú grátir með öðrum líka.

Að finna angann af blómunum og hugsa með sér hvað lífið sé fallegt.

Að sakna og gráta lítinn engil sem ekki er lengur hér hjá mér.

Að þrá eitthvað sem þú munt aldrei finna.

Að gráta af gleði því Guð gaf mér lífið í börnunum mínum.

Að finna til með annarri manneskju og andvaka vegna þess.

Allt þetta er lífið í allri sinni mynd. Svona er ég og er stolt af því.

Annars sakna ég litla sonar míns og hugsa mikið til hans þegar fer að rökkva. Haustið hefur þessi áhrif á mig alveg fram á vor. Hann er fæddur í febrúar og ég kvíði jólunum. Jólin hjá mér síðustu ár hafa ekki verið eins og ég hefði kosið. Því miður. Þessvegna finn ég fyrir depurð á þessu árstíma því ég sé ekki ljósið sem fylgir þessum tíma. Þannig er það og verður eflaust. Sumt í lífinu verður maður að sætta sig við eins dapurlegt og það hljómar.

Er að fara á sjálfstyrkingarnámskeið. Ef ég fæ pössun. Það gekk eitthvað erfiðlega en ég vona að það sé að takast þar sem ég auglýsti í "bæjarsneplinum" og hef fengið svar. Vona að það sé það sem ég er að leyta að. Get verið erfið, enda er þetta ekki það sem ég óska mér að hafa ókunnuga manneskju að sjá um dóttur mína. Ég verð bara að fara á þetta og svo fer ég líka í skóla ó október nokkrum sinnum í viku. Þarf að gera eitthvað fyrir sjálfa mig enda verið ófrísk eða með barn á brjósti heima síðan í júní 2005!!! Tala nú ekki um að ég er öryrki 26 ára gömul og verið heima síðan 2004.....í misgóðu ástandi.

Vona að þið hafið það gott kæru vinir og ég læt hér fylgja með eitt ljóð fyrir litla engilinn minn hann Kristófer sem er 5 ára og býr hjá Guði. Ekki er slæmt að eiga heima þar. Þó er mamma ekki til staðar.....

 GOTT ER SJÚKUM -

Gott er sjúkum að sofna,
meðan sólin er aftanrjóð,
og mjallhvítir svanir syngja
sorgblíð vögguljóð.

Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin í djúpinu er,
og ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.

Knús á línuna...

Svala


Birtir ekki alltaf til um síðir?

Er ekki alltaf ljós handan ganganna?

Sólin blessuð sígur rauð til viðar,
glóa á lofti gullin ský,
grátklökk áin niðar.

Haustið nálgast, hríð og vetrarrosinn,
senn er ekki sólar von,
senn er áin frosin.

Lóan horfin, lokið söngvafulli,
rökkvar hér, en suðræn sól
sveipar hana gulli.

Ógnar myrkrið oss á norðurströndum,
innra grætur óðfús þrá
eftir suðurlöndum.

Eigum vér þá aðeins myrkar nætur,
enga fró né innri hvíld,
engar raunabætur?

Himinn yfir. Huggast þú, sem grætur.
Stjörnur tindra, geislar guðs,
gegnum vetrarnætur.

Vetrarnóttin varla mun oss saka,
fyrst að ljósin ofan að
yfir mönnum vaka.

Nú reyði ég mig á sál mína og kraft. Styrkinn sem ég hef hið innra. Hann er þarna, það veit ég svo vel og það hefur sýnt sig. Harkan tekin á þetta með vott af æðruleysi. Þýðir ekkert annað því annars lifi ég í eymd og volæði. Væl og skæl leiðir af sér volæði. En bjartsýni og von leiðir af sér visku og kraft. Það koma dagar sem eru mjög erfiðir....eins og í gær og nótt. Ég losaði um kökkinn, hnútinn í hálsi og maga með gráti. Grátur er gjöf frá Guði. Í dag brosi ég því ég nýtti mér gjöfina.

eigiði góða helgi elsku vinir

Svala


JEsúsPéturíallannVetur!

Mjög leiðinleg svona blogg hjá mér en thats life!

Er mjög lasin, held ég sé með einhvern fjandann ofaní lungunum á mér en verst er það nú ekki. Ég sef ekki vegna helv...... slitgigtarinnar sem er að gera mig fatlaða með þessu áframhaldi! Kvíði dögunum að vakna með börnunum mínum, þreytt og úthaldslaus með verki......endalausa verki. Kvíði lífinu bara vegna vanlíðan. Kemst sjaldnast til læknis því ég sé um börnin mín á daginn, sérstaklega hana nöfnu mína litlu.

Ömurlegt blogg. Lasin og leiðinleg kona sem elskar börnin sín mest og er miður sín að geta ekki sinnt daglegum þörfum þeirra án þess að grenja sig svo inní nóttina....................

Vona að ykkur, bloggvinum mínum og öllum, líði vel elsku dúllurnar mínar, hugsa alltaf til ykkar með kærleik í hjarta.

Knús

Svala


Klukk

 Ég var klukkuð...Versogúd;)

 

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

-        Barnapössun

-        Landsvirkjun

-        Leiðbeinandi á leiksólanum Ásheimum, Selfossi

-        Leiðbeinandi á Leikskólanum Kópasteini, Kópavogi

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

-        Magnolia

-        Bridges over Madison county

-        Sex and the city - the movie;)

-        Fight Club

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

-        Selfoss

-        Þorlákshöfn

-        Hafnarfjörður

-        Hveragerði

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

-        Sex and the city

-        Greys anatomy

-        Nætur/Dagvaktin;)

-        Medium

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

-        Spán

-        Eigin huga

-        Krít

-        Ameríka

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

-        Barnaland.is

-        Facebook.com

-        Myspace.com

-        Hotmail.com

Fernt sem ég held uppá matarkyns:

-        Brauð

-        Kjúlli

-        Allt Indverskt

-        Allt Kínverskt

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

-        Allt með Alice Seabold

-        Biblíuna

-        Huggun í sorg

-        The Secret

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

-        Katrín Kristófers

-       Lady

-       Hrossið;)

-        Guðnýju


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband